30.09.03

Viðtal og hlaup

Gyða henti mér úr tölvunni hálf ellefu í gærkvöldi, dró mig svo í bælið klukkan ellefu. Ég þarf að fá ferðavélina mína aftur í gang :-) Nóttin var frekar erfið, Inga María hóstaði óskaplega, er samt þokkalega hress og er á leikskólanum núna.

Fór í starfsviðtal í morgun sem ég held hafi gengið nokkuð vel, er a.m.k. frekar bjartsýnn, má þó ekki vera of bjartsýnn ef þetta skyldi klikka, er ansi spenntur fyrir þessu starfi.

Skellti mér í ræktina eftir viðtal og hljóp sex kílómetra á 29:18, var örlítið erfiðara en síðast, enda er ég dáldið kvefaður, en gekk samt vel.

Veit ekki alveg hvað ég á að gera af mér núna - held ég þurfi bara að slaka aðeins á, ekki vera of vongóður - en samt dáldið.

30.09.2003 11:43 dagbók prívat
Mynd sem Kolla teiknaði af mér

Nýjar athugasemdir

www.flickr.com