Örvitinn

Ekkert tuð Jamm, ekkert tuð

Ekkert tuð

Jamm, ekkert tuð í dag. Er að dunda mér við að setja upp linux server heima, sem ég ætla svo að nota sem vefþjón fyrir þennan vef. Gengur ágætlega, apache keyrir og ssl komið upp. Þarf að setja eldvegginn upp í kvöld, loka á allt nema port 80 og 22. Kópera svo vefinn yfir, testa aðeins og þá get ég plöggað honum í samband við umheiminnm.

Meira var það ekki í bili. Jú, ég ætla að skella inn þyngdartölum á vefinn á næstunni, er 96kg núna, ætla mér að vera 90kg í lok mars þegar ég fer næst í mælingu. Var 110,6 í fyrstu mælingunni í byrjun september.

tækni