Örvitinn

Blaður

Hér sitjum ég og Kolla og horfum á morgunsjónvarpið. Þvílík skemmtun. Kolla tók upp á því að vakna 7:45 í morgun. Ætli hún hafi ekki fattað að það var komið að mér að vakna með henni :)
Annars er þetta ósköp notalegt. Ég rápa um vefinn og les fréttir af stórsigri Liverpool á Ipswich í gær, 6-0. Frábær leikur, frábært lið.
Prestar halda áfram að svara spurningu minni (Eru allir prestar fífl?)
Minnispunktur. Fundur hjá SAMT 23/2 12:00, tek Liverpool-Everton leikinn kl.15:00 upp, geri ekki ráð fyrir að ná honum.

dagbók