Örvitinn

Allt virkar ennþá

Allt virkar ennþá
Jújú, þetta virðist hanga uppi. Gyða hefur verið voðalega dugleg við að uppfæra vefinn undanfarið, setti upp síðu fyrir Ingu og hefur svo líka verið dugleg við að skrifa í dagbókina sína.
Settum inn fleiri myndir. Ég er að velta því fyrir að fara að setja inn eitthvað af eldri myndunum okkar á vefinn líka. Eigum slatta af ljósmyndum frá því við keyptum stafrænu myndavélina. Minnir að það hafi verið haustið 1999. Ótrúleg þróun átt sér stað síðan við keyptum vélina okkar, myndavélarnar orðnar fullkomnari og verðið alltaf að lækka. Okkar kostaði 130.000.- út úr búð en pabbi reddaði henni á góðu verði. Ég er samt feginn að hafa keypt þessa vél þar sem hún stendur enn fyrir sínu í dag. Þarf ekkert að uppfæra á næstunni.
Nóg að gera í vinnunni.
Vefur dagsins er debunker.

dagbók