Örvitinn

Örsvefn

Örsvefn
Snillingurinn konan mín reddaði gluggatjöldunum í svefnherberginu okkar í gær. Þau duttu niður fyrir meira en mánuði og síðan höfum við sofið án gluggatjalda. Í gær settum við þau svo upp með smá tilfæringum sem Gyða fattaði upp á og í nótt svaf ég í myrkri í fyrsta sinn í langan tíma. Það var afskaplega ljúft.
Alveg merkilegt hvað litlu hlutirnir gefa vafist lengi fyrir manni. Merkilegra hvað maður sættir sig við í staðin fyrir að redda málunum.

dagbók