Örvitinn

Raunir mínar

Raunir mínar
Inga María svaf nú ekki í nema um hálftíma :( Vaknaði frekar óhress og orgaði bókstaflega í fanginu á mér þar til móðir hennar kom heim rúmum hálftíma síðar. N.b. allir tímar í þessari dagbók eru klukkustund á eftir áætlun, blogger ræður ekki við sumartímann hér á landi eða réttara sagt, skortinn á sumartímanum. Þannig að Inga María sofnaði um miðnætti í gær og vaknaði um hálf eitt. Gyða kom heim rúmlega eitt. Ég hafði sent henni SMS þegar Inga María sofnaði og sagði henni að slaka á, hefði betur sleppt því :)
Það er óskaplega erfitt að ganga um með organdi barn. Ég þakkaði fyrir það í gærkvöldi að stelpurnar hafa nú sloppið að mestu leiti við kveisur, þannig að ég hef sjaldan upplifað þetta.

dagbók