Örvitinn

Örlítið

Örlítið
Ekki er nú margt að frétta. Ég var hetja í morgun, vaknaði 6:30 og náði fyrsta strætó. Það hefur gengið frekar brösulega undanfarið. Gyða, Kolla og Inga María komu og sóttu mig í hádeginu. Við fórum út að borða á Pottinum og pönnunni, fengum okkur hlaðborð hjónin. Það var ágætt, fínt að komast aðeins út og hitta stelpurnar.

Gyða mín, ég elska þig :) Reyndu nú að hafa það gott það sem eftir er dags.

Ég ætla að skjótast í World Class, reyna að svitna dáldið.

dagbók