Örvitinn

Hitt og þetta

Hitt og þetta
Jæja, Liverpool vann Blackburn í gærkvöld 4-3 á sama tíma og Arsenal tryggði sér meistaratitilinn með því að leggja Manchester United af velli. Hagstæð úrslit fyrir Liverpool þar sem þeim dugir nú að sigra Iphswich í síðasta leik til að tryggja sér annað sætið í deildinni.
Alveg er þessi nektarstaða og klámumræða að gera mig vitlausan þessa dagana. Furðulegt í landi eins og Íslandi skuli púritíanar sem eru mikill minnihluti þjóðarinnar einoka opinbera umræðu um þessi málefni. Heimir Már skrifar góða grein um þetta mál í moggann í dag.

boltinn