Örvitinn

E3 og fleira

E3 og fleira
Jæja E3 sýningin er hafin og strákarnir eru úti að sýna EVE. Viðbrögðin eru þegar farin að skila sér, allt að verða vitlaust á foruminu á EVE vefnum.

Fór með Davíð í World Class í morgun. Helvíti fínt að vera mættur svona snemma. Stefndi á að hlaupa sex kílómetra en sökum leti og slappleika hljóp ég ekki nema fimm kílómetra. Verð að vera duglegri næst. Góðu fréttirnar eru þær að eftir tímann var ég 89,3kg. Nú er stefnan sett á það að drulla sér undir 90kg. Tel mig vera búin ná því þegar ég hætti að sjá 90kg á vigtinni.

heilsa