Örvitinn

lausar skrúfur

lausar skrúfur
Ferðavélin mín er í einhverju lamasessi. Á það til að frjósa algjörlega og þegar það gerist getur verið erfitt að fá hana í gang aftur. Ég held að það sé minniskubbur sem veldur þessum vandræðum en einnig er eitthvað að skrölta inni í vélinni.

Er að reyna að taka hana í sundur en það gengur eitthvað erfiðlega. Maður þorir náttúrulega ekki að taka mikið á svona græju, en ég þarf að opna hana til að finna hvað hefur losnað.

Er búinn að losa heilmikið og vélin virkar ennþá (þetta er pikkað á henni) ... vonandi deyr hún ekki í höndunum á mér.

tölvuvesen