Örvitinn

góðan daginn

góðan daginn
klukkan er 5:35 og ég ætti að vera sofandi en nei, ég er vaknaður til að horfa á fótbolta. Svaf nú ekkert alltof vel í nótt, Kolla kom upp í til okkar aðra nóttina í röð og það hefur farið furðu mikið fyrir henni í rúminu okkar. Ég þurfti því ekki vekjaraklukku til að vakna, hef verið að vakna á klukkutímafresti síðan hún kom upp í.

Heimferðin gekk vel í gær, var um 27 mínútur á leiðinni. Hjólaði ekki sömu leið heim, fór niður Suðurlandsbraut í stað þess að fara Bústaðarveginn. Slapp þannig að mestu við brekkur upp á við þar til ég kom í Breiðholtið.

Jæja, þá er bara að halda sér vakandi yfir leiknum, hann byrjar nú fjörlega þannig að það ætti ekki að vera mikið mál.

dagbók