Örvitinn

það er nú meiri blíðan

Ég nennti ekki að vakna 6:30 í morgun, enda fór ég ekki að sofa fyrr en um miðnætti í gær. Lagði af stað í vinnuna 9:06 og var um 25 mínútur á leiðinni.

Ég hef verið að stúdera leiðina til og frá vinnu með tilliti til þess að losna við að hjóla mikið af brekkum. Núna er ég búinn að komast að því að brekkurnar skipta engu máli, ég er kominn í nógu gott form til þess að hjóla bara yfir allar þessar brekkur :)

Héðan í frá hjóla ég því bara stystu leiðina, óháð öllum brekkum og slíku. Brekkur eru gerðar til þess að hjóla yfir þær.

dagbók