Örvitinn

Vigtin

Í morgun sagði vigtin 89,9. Þetta er viss áfangi hjá mér vegna þess að þetta er í fyrsta sinn sem ég sé undir 90kg fyrir utan vigtun eftir leikfimi.

Ég held að það sé að skila sér ansi hratt hvað ég hjóla mikið þessa dagana.

Verð orðinn 80kg áður en sumarið er búið, því lofa ég. Næsta takmark er svo að losna við varadekkið, en síðast þegar ég var í góðu formi (1993) var ég með smá varadekk. En fyrsta markmið er 80kg, hitt kemur síðar.

dagbók