Örvitinn

vefþjónn niðri

Vefþjónninn á vélinni minni var niðri í nótt eftir að ég uppfærði hann í gær. Um fjögur í nótt reyndi hann að endurræsa sig eins og hann gerir á hverri nóttu en í kjölfar uppfærslunnar gat hann ekki endurræst sig.

Ég efast um að margir hafi tekið eftir þessu, en ég ræsti vefþjóninn aftur um 10:10 í morgun.

Það er augljóst kostur að hafa home síðuna á servernum, því þá verður maður fljótt var við það þegar serverinn er ekki að virka.

Serverinn sjálfur hangir ennþá uppi, hefur nú keyrt óslitið í 72 daga.

tölvuvesen