Örvitinn

pasta basta

Gyða, Kolla og Inga María komu til mín í hádeginu og við fengum okkur að borða á Pasta Basta. Þeir eru með ágætt hádegishlaðborð en verðið á því er reyndar aðeins of hátt. 1199.- á manninn. Við vorum við einu viðskiptavinirnir í hádeginu. Varla mikið á því að græða.

Maturinn var góður og Kolla borðaði vel, sem var ennþá ánægjulegra í ljósi þess að ekkert þurfti að borga fyrir hana.

Eftir mat kíktum við inn í skífuna til að kaupa Shrek á DVD, en þá var hún ekki til. Við gerum nú ekki mikið af því að kaupa DVD myndir en langar að kaupa þessa til að hafa eitthvað fyrir stelpurnar að horfa á sem ég og Gyða getum haft gaman af líka.

dagbók