Örvitinn

glæpaborgin Reykjavík

Christian Tismer höfundur Stackless Python er staddur hér á landi þessa dagana til að aðstoða okkar hjá CCP við framleiðslu EVE.

Í gær lenti hann í því að ferðatölvu var stolið úr töskunni hans, líklega á O´Brians bar. Þetta er Dell Latitute c400, 700 MHz, 256 MB, 20 gíg diskur. Tveggja ára gömul með windows 2000. Einn örvalykill örlítið bráðnaður eftir að Tismer missti sígarettuösku á lyklaborðið. Aðeins tölvan var tekin og Tismer er ennþá með straumbreyti og drif.

Þetta er afskaplega bagalegt fyrir okkur þar sem Tismer er í rusli út af þessu og hefur glatað persónulegum gögnum. Ef þið eða einhver sem þið þekkið þekkir til í undirheimum Reykjavíkur mættuð þið gjarnan redda tölvunni. Fundarlaun í boði.

dagbók