Örvitinn

kynlífsiðnaðurinn í Japan

Er greinilega ekki að höfða til mín. Djöfull er þetta leiðinlegur og lítið kynæsandi þáttur í sjónvarpinu.

Held ég skoði þá frekar húninn.

Annars er þetta búið að vera ofurdagur. Hjólaði í ræktina í morgun, tók á því og hjólaði svo í vinnuna. Hjólaði svo heim rétt fyrir níu og kvöld og sótti fótboltaskó og fór á 90 mínútna æfingu með HENSON. Stefnan er sett á að vakna snemma í fyrramálið en það hefur ekki gengið mjög vel morguninn eftir fótboltaæfingar.

Ég ætla samt pottþétt að mæta í World Class á morgun og skokka aðeins. Ef ég verð ekki léttari en 88kg eftir þá æfingu verð ég brjálaður (eða a.m.k. pínku sár, fer kanski að gráta)

Jæja, húnninn fyrir svefninn. úúú, Emanuelle á Sýn, held ég sleppi því að horfa á hana.

dagbók