Örvitinn

föstudagur

Stelpurnar koma heim í kvöld. Það er ekki víst að ég hitti þær í kvöld þar sem það verður grill og bjór hér í CCP í kvöld. Nú skal fagnað samningum við símann um hýsingu á serverum, góðu gengi í alpha testi og bara lífinu almennt.

Ég veit ekki hvað ég ætla að vera duglegur í bjórnum í kvöld. Læt það bara ráðast (les: drekk meira en ég ætla mér) Annars er bjór náttúrulega svo fitandi að ég ætti að fara sparlega í hann bara útaf því.

Ég steinsvaf náttúrulega yfir mig í morgun. Ræð hreinlega ekki við að vakna einn heim :) Sleppti World Class og fór með strætó í vinnuna. Leti í mér, jájá.

Davíð var búinn að plana teiti hjá sér á laugardaginn en svo lét hann sig hverfa í sumarfrí karlinn. Hef ekkert heyrt í honum síðan á Sunnudaginn þegar hann hringdi í mig þar sem ég var að rúnta um Vestfirði.

Við verðum þá bara að finna annan tíma fyrir kvenfélagsfund.

dagbók