Örvitinn

dagurinn eftir

Það var heljar fjör hjá CCP í gærkvöldi. Grillmatur etinn og öl drukkið. Hópurinn fór svo á skemmtistaðinn Circus sem er í næsta húsi við hliðina á CCP og þar var dansað fram á nótt. Ég svitnaði alveg hrikalega en skemmti mér líka mjög vel.

Í morgun var ég 86,4kg á vigtinni. Ég er alltaf léttari en venjulega daginn eftir fyllerí, en gaman að sjá 86 svona einu sinni. Við skelltum okkur í Smáralind áðan og þar keypti ég mér buxur og peysu í Dressman. Buxurnar voru nr. 34 en ég var að bíða eftir því að komast í þá stærð áður en ég fjárfesti í nýjum buxum.

Fyrir átak gekk ég í buxum nr. 42.

dagbók