Örvitinn

skýrsla dagsins

Fór á fætur 8:30 í morgun, leyfði Gyðu að sofa í tæplega klukkutíma í viðbót þar sem nóttin var frekar erfið hjá henni (ég varð nú var við það í nótt svosem, en gat þó sofið mun meira en hún)

Fór svo í World Class um hálf ellefu, skokkaði fjóra kílómetra (ætlaði nú upphaflega að skokka sex) tók smá magaæfingar og teygði á mér skankana.

Var 87,8kg eftir tímann.

nb. fyrst ég er búinn að setja upp flokkakerfi (sem sést fyrir neðan færsluna) ætla ég að vera duglegri við að setja þyngdartölur hingað inn í flokkinn líkamsrækt - heilsa. Þar með verður auðvelt fyrir mér mig að finna á einum stað þyngdaryfirlit með dagsetningum. Línurit kemur síðar.

heilsa