Örvitinn

dýfur vikunnar

Ætla að halda utan um árangur í einstökum æfingum á næstunni, sjá hvort ég get ekki bætt mig aðeins ef ég hef vitni að þessu.

Byrjaði aftur að gera dýfur í morgun, hef ekkert gert dýfur á árinu! Niðurstaðan: 12 dýfur sem er sæmilegt, held ég hafi rétt náð fimm í desember. Man það þó ekki alveg. Ég þarf að rífa þetta upp í 20 endurtekningar á næstu vikum. Sjáum til hvernig það gengur. Þetta verður semsagt reglulegur liður í dagbókinni, dýfur vikunnar. Bæti hugsanlega fleiri æfingum inn í þetta, t.d. armbeygjum.

Af hverju? Jú til að hafa eitthvað til að stefna á auk 80 kílóanna.

Gleymdi að fara á vigtina í World Class í morgun. Hef ekki séð 90kg aftur.

heilsa
Athugasemdir

Gyða - 24/07/02 10:34 #

Hvað eru dýfur? Svona fyrir okkur sem ekki stundum World Class. Gyða

Matti Á. - 24/07/02 10:40 #

Dýfur eru svona.

Svarthvíta myndi á síðunni er hreyfimynd. Ef hún hreyfist ekki er dáldið erfitt að sjá þetta. Kíktu hér fyrir skýrari ljósmynd.