Örvitinn

verzlunarmannahelgi

Ekki geri ég neitt um þessa helgi frekar en aðrar. Man reyndar ekki eftir því hvenær ég gerði eitthvað sérstakt um verslunarmenni helgi síðast.

Mætti á bílnum í vinnuna í dag og fór í ræktina núna klukkan þrjú. Tók heljar lappaæfingu. Verð væntanlega með hrikalegar harðsperrur í fótum á sunnudaginn.

Þarf svo að vinna til miðnættis til að ná vikukvótanum, svo ég þurfi ekki að mæta hingað um helgina. Tek þó ferðavélina með mér heim og mun eflaust vinna eitthvað heima um helgina. Þeir tímar telja þó ekki með í krönsinu.

Annars ætla ég að gera örlitla breytingu á dagbókinni á næstu dögum. Ég ætla að setja upp sérstaka dagbók fyrir ræktina, en á henni verður ekkert nema þyngdartölur, árangur í einstökum æfingum og almennt spjall um æfingar. Með því að skipta þessu svona upp get ég verið duglegri við að setja inn ýmsar svoleiðis upplýsingar án þess að það flæði yfir þessa dagbók sem á frekar að innihalda pælingar og almennar frásagnir.

dagbók