Örvitinn

viti menn

Ég og Davíð mættum báðir í ræktina í morgun. Davíð var mættur á undan mér, enda svaf ég til 6:45 eins og versta kerling. Dabbi ætlaði bara að skokka eins og hæna en ég dró hann með mér í lóðin þar sem við lyftum stáli eins og gagnkynhneigðir karlmenn eiga að gera.

Tók engar dýfur, tek þær á morgun eða hinn.

heilsa
Athugasemdir

Davíð - 07/08/02 09:23 #

.....ánægður með þetta: "eins og gagnkynhneigðir karlmenn".

Það veitir ekki af að ýta aðeins undir það karlmannlega í fari mínu.......

...burtu með það kvennlega!