smá breytingar á dagbók

Var að bæta við flokknum þyngd. Ég mun semsagt reglulega setja inn færslur þar sem innihalda ekkert nema þyngd í titli færslunnar. Tíminn á færslunni verður svo nokkurn vegin tíminn sem ég vigtaði mig á.

Ætla að fara í gegnum dagbókina og búa til svona færslur aftur í tímann, þá verður hægt að smella á flokkinn hér hægra megin eða fyrir neðan hverja færslu og fylgjast með því hvernig gengur í átakinu.

Ég hef gott af því að vita af því að þið krakkarnir fylgist með mér. Spurning hvort ég skelli Davíð ekki inn í þetta kerfi líka :)

13.08.2002 10:28 tækni
Athugasemdir

regin - 13/08/02 11:25 #

Það er glimmrandi hugmynd að hafa þyngd Dabba til samanburðar. Kannski bæta Þórhalli þarna líka inn :) Ættir að gera svona línulegt graf þar sem sjónrænt væri hægt að meta stöðu mála hjá ykkur.

Ágústa - 13/08/02 15:21 #

Einmitt Regin - frábær hugmynd - svona einhvern veginn svoldið ekta þú ;)




ath. póstfangið birtist ekki á síðunni

má sleppa

(næstum öll html tög virka, einnig er hægt að nota Markdown rithátt)

Mynd sem Kolla teiknaði af mér

Nýjar athugasemdir

www.flickr.com