Örvitinn

ætla að skjótast

Í ræktina og hlaupa aðeins. Var búinn að senda póst á Dabba og Óla varðandi helgina, bíð nú bara eftir viðbrögðum.

Uppfært 15:45
Fór í World Class og hljóp 6km á 32 mínútum. Djöfull var það hrikalega strembið. Var alveg við það að gefast upp en djöflaðist einhvern vegin síðustu 15 mínúturnar.

Var 87,7kg fyrir hlaup, 86,8kg eftir. Ekkert komment ennþá frá Dabba og Óla. Hefur eitthvað náðst í Eika?

Við erum búin að redda pössun. Eigum dáldið erfitt með að mæta svona snemma samt, viljum svæfa Ingu Maríu áður en við förum.

heilsa
Athugasemdir

regin - 15/08/02 16:10 #

Mætingartíminn er ekki svo stífur Nei ekkert náðst í Eika, þau hljóta að vera heimavið í kveld.

Davíð - 16/08/02 07:21 #

Ég mæti ferskur strax eftir "Söludeild closed" mótið. Það verður svona um kl. 21:00 gæti ég trúað. Ég verð maður einsamall.

Regin - 16/08/02 09:19 #

Búin að tala við Tröllabar, þau koma líklegast, vita betur með kveldinu.

Regin - 16/08/02 09:46 #

Já og frúin vill að ballið byrji um átta leitið, ekki sjö eins og ég hafði stungið uppá :=)