Örvitinn

sundferð

Skelltum okkur í sund í Laugardalslaug í hádeginu. Ég, Kolla og Áróra fórum nokkrar ferðir í stóru rennibrautinni og höfðum gaman af. Ég fór með Kollu í fanginu og hún skemmti sér mjög vel. Sagði alltaf "aftur aftur" þegar við vorum komin niður. Þurftum að semja sérstaklega um síðustu ferð til að geta hætt.

Eftir sund fengum við okkur að sjálfsögðu pylsur. Væri svo sem ekki frásögum færandi nema hvað, helvítis vespurnar boluðu okkur í burtu. Ekki hægt að sitja þarna fyrir þessum andskotum.

Kolla var meðal annars orðin skíthrædd þegar þau vöfruðu um við pylsuna hennar.

Er núna mættur í vinnuna (en ekki hvað) og verð þar í svona þrjá-fjóra tíma í dag.

dagbók
Athugasemdir

Regin - 26/08/02 09:36 #

Góðan daginn gott fólk.