Örvitinn

sex

Hljóp sex kílómetra í hádeginu á 31 mínútu. Þar af rólegt tölt fyrstu mínútuna meðan ég stillti útvarpið og tækið.

Þetta var helvíti strembið, var við það að ofreyna mig en náði þessu samt. Tónlistin hjálpaði til, þegar ég var búinn með fjóra kílómetra á 21 mínútu byrjaði Paradise City með Guns'n Roses að hljóma og þá tók ég næstu fjórar mínútur á heljar hraða (14km/klst), var næstum því sprunginn eftir það, hægði á mér í 12,5km/klst og tók svo sprett þegar ég átti 400 metra eftir og tók þá á 15km/klst.

80kg fyrir áramót....

heilsa