Örvitinn

einn í fyrramálið

Davíð Torfi hefur ekki ennþá séð sér fært að svara MSN skilaboðunum frá því í dag, þannig að ég geri passlega ráð fyrir að verða einn í ræktinni í fyrramálið. Ætla að vakna hrikalega snemma svo ég nái að kíkja aðeins í vinnuna áður en ég fer heim að dunda mér með Ingu Maríu meðan Kolla og Gyða eru í leikskólanum.

heilsa