28.08.02

ljósleiðarinn bilaður

CANTAT3 er bilaður þessa stundina. Vonandi gerist þetta ekki oft eftir að EVE fer í gang. Reyndar verður serverinn úti í London en það verður slæmt fyrir okkur hér að missa samband við hann.

Bilunin veldur því meðal annars að MSN Messenger virkar ekki þar sem það forrit þarf að tengjast server erlendis. Þetta er stór galli við svona forrit þar sem það er hálf kjánalegt að hugsa til þess að ég get ekki notað það til að tala við mann í næsta herbergi þar sem forritin geta ekki talað við server í Bandaríkjunum.

Skrítið að það sé ekki MSN Messenger server á Íslandi þar sem þetta forrit er gríðarlega mikið notað, en væntanlega er forritið ekki hannað með þann möguleika í huga að serverum sé dreift víða um heim. Þarf að tengjast á móðurserverinn til að geta virkað yfir höfuð.

Uppfært 12:55
Annart á Beta test að fara í gang á EVE í dag þannig að þetta er vægast sagt óheppileg tímasetning fyrir okkur í CCP. Þúsundir manna heimsækja vefinn okkar á hverjum degi og bíða núna eftir að fá staðfestingarpóst um að þeir hafi komist í Beta testið.

28.08.2002 08:00 tækni
Athugasemdir

Regin - 28/08/02 16:26 #

Hvernig er það átti ekki að fara að leggja nýjan sæstreng? Minnir að ég hafi lesið e-ð slíkt nýlega.

Matti - 28/08/02 16:33 #

Jú, það hélt ég. Landsímamenn hafa eitthvað verið að dreifa athyglinni með því að fjalla um ljósleiðara sem á að leggja á næsta ári. Eflaust er það bara sá ljósleiðari.

Ég hélt að það ætti að opna tengingu til Bretlands, það væri meðal annars ein forsenda fyrir því að það sé fýsilegur kostur að hafa EVE serverinn í London.

Mynd sem Kolla teiknaði af mér

Nýjar athugasemdir

www.flickr.com