Örvitinn

heima með Ingu Maríu

Ég skaust heim til að passa Ingu Maríu. Mér finnst eiginlega ekki hægt að tala um að maður passi eigin börn, eða hvað!

Hún sefur reyndar úti í vagni. Við röltum með Gyðu og Kollu í leikskólann áðan og svo sofnaði hún í vagninum.

Kolla var mjög kát á leiðinni í leikskólann en var samt ekki á því að fara í leikskólann í morgun. "Ekki í dag" sagði hún við mömmu sína. Ég held samt að hún sé mjög kát með þetta.

Það er ekki nóg með að hún farið í fyrsta sinn í leikskólann í gær, hún fór líka í fyrsta sinn í bíó.

dagbók