Örvitinn

í vinnu fram á nótt

Ég sit hér í vinnunni og reyni að klára mína hluti. Vil helst sleppa því alveg að mæta í vinnuna á morgun, Sunnudag.

Er núna að endurskrifa TCP hlutann af EVE net hlutnum, nota asyncronous callbacks í staðinn fyrir windows message notification. Það er bara svo miklu snyrtilegra (og hraðvirkara) að setja aðal þráðinn í alertable state og höndla þar callback föll í staðin fyrir að vera með þetta windows message dæmi.

Munurinn á því þegar ég tala svona og þegar trúmenn tala svona er sá að ég get sýnt ykkur hvernig þetta dót mitt virkar, ekki þeir :-) Þannig að jafnvel þó þið skiljið ekki orð, get ég að minnsta kosti leitt ykkur í gegnum það staf fyrri staf hvernig þetta dótarí virkar allt saman. En þetta er allt frekar einfalt, svona þegar maður kann það.

tækni