27.09.02

rafmagnið enn og aftur

Rafmagnið var tekið af hér í CCP í morgun klukkan sex, sem olli því náttúrulega að serverinn fór niður.

Málið er að serverinn minn fer ekki almennilega í gang sjálfur þar sem ég hef ekki sett allar stillingar í startup scriptin (veit satt að segja ekki almennilega hvar ég á að setja þessar stillingar)

Því þarf ég sérstaklega að setja inn default route, svo einhver utan CCP geti skoðað heimasíður. Einnig þarf ég að start mysql í höndunum og ssh.

Ég hef nefnilega passað mig á því að læra jafn lítið á linux og ég kemst upp með, en nógu mikið til að halda þessu boxi gangandi.

27.09.2002 10:27 tölvuvesen
Mynd sem Kolla teiknaði af mér

Nýjar athugasemdir

www.flickr.com