Örvitinn

ég er pirraður

Djöfull er ég pirraður út í allt og alla í vinnunni núna. Ég hef eflaust farið vitlaust framúr í morgun.

Verð að hætta að láta næturvaktina fara í taugarnar á mér. Jafnvel þó næturvaktin sé skammsýn og geti ekki tjáð sig.

Ég þarf að komast út í hádeginu.....

dagbók
Athugasemdir

Regin - 01/10/02 10:42 #

Ertu ekki bara búin að vinna yfir þig? Hvernig gengur annars betan? Verður þetta allt upp and running in time?

Matti Á. - 01/10/02 11:00 #

Jú, ég er fyrir löngu búinn að vinna yfir mig. Ástandið væri þó skárra ef það væri eitthvað motivation í gangi hérna, en það er varla hægt að segja að svo sé. Fyrir utan peninga, peningar eru bara svo léleg ástæða til að mæta í vinnuna.

Betan gengur vel, nokkur hundruð manns að spila. Auðvitað hafa komið upp vandamál, en það er einmitt tilgangurinn með svona beta testi.

Ég ætla rétt að vona að þetta verði tilbúið á tíma. Get samt ekki sagt að ég hafi fulla yfirsýn yfir þetta.