Örvitinn

samtíningur

Þyngartölur síðustu daga eru ekki jákvæðar. Kemur allt til út af of miklu áti á kvöldin nú þegar ég er farinn að borða heima hjá mér. Ég hef nefnilega haldið fast í þá reglu hjá CCP að fá mér bara einu sinni á diskinn. Það sama gerist ekki heima, heldur er ég að borða alltof mikið.

Hvað um það, ég hef ekki miklar áhyggjur af þessu eins og er. Í rauninni er ég bara ég ekkert að þyngjast, heldur hef ég bara verið að snúa sólarhringnum örlítið við.

Hljóp fimm kílómetra á 28 mínútum í World Class í morgun. Ágætis æfing, nennti þó ekki að fara sex kílómetra. Geri það næst.

heilsa