Örvitinn

svo bregðast krosstré..

Nú klikkaði Mogensen illa. Ég hringi í melinn í gærdag og spurði hann hvort hann væri ekki maður í fótbolta í dag. Jújú, hann var svo sannarlega til í það.

Í dag náði ég svo ekkert í karlinn, þá var hann bara í einhverjum flutningum og svo með matarboð í kvöld.

Við vorum svo sjö í boltanum, vantaði nákvæmlega einn mann.

Ég býð þér aldrei aftur í fótbolta melurinn þinn.

:-)

dagbók
Athugasemdir

Regin - 19/10/02 22:51 #

Ég biðst afsökunar. Ég ætlaði að hringja í þig, hugsaði um það svona 20 sinnum og gleymdi því svo. Þannig er mál með vexti að ég fór í ræktina eftir vinnu á föstudag, gleymdi sokkum, ákvað bara að skokka sokkalaus í skónum. Tók 6km á góðum spretti og uppskar feita blöðru á stóru tá á vinstri fæti. Þetta gerði útum um frama minn í fótbolta, sem ég svo gleymdi að tilkynna :(

Ég skal splæsa á þig hlölla á næsta djammi, með mikilli sósu. :)