Örvitinn

þessa stundina

Er verið að murka lífið úr blessuðum silfurskottunum sem ekkert hafa til saka unnið annað en að vera til.

Af hverju þessi grimmd. Hver er tilgangurinn með þessu lífi þeirra sem nú endar án nokkrar sýnilegrar ástæðu.

Hvað ætli síðustu silfurskotturnar muni pæla á morgun þegar þær ráfa á milli líkanna. Horfa á börnin sín gefa upp öndina. Finna að eitrið er að hafa áhrif, vita að innan skamms tíma mun fara eins fyrir þeim og öllum hinum.

Af hverju tekur enginn málstað silfurskottna? Af hverju er engin útbrunnin leikkona að klæða sig úr fötunum núna til þess að stöðva þessa slátrun.

Ég meina... þær eru silfraðar.

dagbók