Örvitinn

rólegt í kvöld

Ekki það að flest kvöld séu ekki róleg hjá mér, en þetta verður sérlega rólegt í kvöld. Gyða, Kolla og Inga María gista í nótt hjá tengdó. Ég og Áróra verðum ein heima.

Ég mun koma mér vel fyrir í sófanum í kvöld og horfa á Ensku og Spænsku mörkin á Sýn frá klukkan níu í kvöld. Það held ég að verði bara ágætt.

Verst að ég þarf að setja aftur á sinn stað listann og "hliðina"!!! sem ég tók frá í morgun svo hægt væri að eitra undir eldhúsinnréttingu.

Þetta skrifa ég hér til að skrifa eitthvað.

dagbók