Örvitinn

afmæli og vinnustaðafyllerí

Gyða á afmæli í dag. Í tilefni dagsins fékk hún að sofa hálftíma lengur í morgun :-)

Við ætlum að gera eitthvað skemmtilegt saman á morgun en í dag ætla ég að vera til skammar sem eiginmaður og fara á skrall með vinnunni.

CCP ætlar í keilu um fjögur, svo verður skundað aftur í höfuðstöðvarnar og grillmatur etinn, öl drukkið og fussball spilað.

dagbók
Athugasemdir

Hildur Björk L - 01/11/02 15:41 #

Matti, þú verður að sannfæra Eggert um að koma með..:)

Matti Á. - 01/11/02 15:47 #

Ég geri mitt besta