Örvitinn

standa á eigin fótum

Nei, engin ástæða fyrir mig að standa á eigin fótum. Ég flutti beint úr foreldrahúsum til Gyðu og hún hefur séð um mig síðan.

Inga María byrjaði aftur á móti að standa á eigin fótum í gær.

Ég var að setja inn nokkrar nýjar myndir á myndasíðuna. Ég ætla að huga að því bráðlega að gera eitthvað almennilegt úr þessari myndasíðu. Er búinn að vera með kerfi í kollinum í dáldið langan tíma... þarf að skrifa niður hugmyndir og útfæra svo eitthvað skemmtilegt kerfi. Auðvitað gæti ég náð í einhver tilbúin kerfi á netinu... en þetta er eitthvað sem mig langar að skrifa sjálfur. Er búinn að fikta við að lesa exif upplýsingar úr myndunum, þarf svo bara að vista þær upplýsingar í gagnagrunni og skrifa python skriftur til að setja þetta fram.

dagbók