Örvitinn

status

Enn og aftur vann ég frameftir síðustu nótt, fór ekki að sofa fyrr en þrjú og svaf svo frameftir í morgun.

Ætla að vera í vinnunni fram á nótt, tek mér pásu í kvöld til að fara á fótboltaæfingu.

Þriðja beta testið var að fara í gang og það skýrir þetta vinnubrjálæði. Hlutir sem ég er með í höndunum hafa verið að klikka og ég þarf einfaldlega að koma þeim í lag, nú þegar hundruðir eða þúsundir manna eru að reyna að spila EVE.

Í fyrramálið klukkan tíu kíkir rafvirki á mig og vonandi verður hægt að græja þau mál fyrir helgina. Ég stefni á að kára að mála á morgun.

Af netrökræðum mínum er það síðast að frétta að til er fólk sem trúir á stjörnuspeki, smáskammtalækningar og voodoo á Íslandi í dag.

Eggert benti mér annars á þessa síðu um daginn, ég er nokkuð viss um að þetta er einn þeirra trúmanna sem ég rökræði stundum við á spjallþráðum.

Greinilega snarklikkaður.

dagbók