Örvitinn

fyrirsagnir og kynlíf

Stundum set ég link á dagbókina eða ákveðna færslu í henni í póst sem ég sendi. Hef dáldið gaman af því að fylgjast með því hvað fólk skoðar þegar það kemur inn á síðuna í fyrsta skiptið.

Yfirleitt velur fólk flokk og les svo þær greinar sem vekja áhuga. Undantekningarlaustlítið eru það titlar sem vísa í kynlíf sem verða fyrst fyrir valinu.

Ég er semsagt ekki einn um það að vera með kynlíf á heilanum.

Ef þið skoðið myndina sést hvað ég sé þegar ég er að fylgjast með því sem er að gerast á vefþjóninum. Þessi gluggi uppfærist í hvert sinn sem eitthvað er sótt af vefþjóninum.

vefmál