Fór á útgáfutónleika Ensími á Gauknum í gærkvöldi. Mættum í forpartý þar sem boðið var upp á bjór. Hittum Frans þegar við mættum og svo Hrafn skömmu síðar, spjölluðum örstutt við Hrafn.
Tónleikarnir voru fínir, góð keyrsla og rokk í gangi. Tónlist Ensími er samt að mörgu leiti betur til þess fallin að hlusta á í græjum heldur en live. Þetta segi ég nú reyndar þrátt fyrir að hafa fýlað nokkur lög ansi vel, sérstaklega þau sem ég hafði heyrt áður. Það hefði eflaust breytt miklu ef ég hefði verið búinn að renna í gegnum diskinn þeirra.
|
www.flickr.com
|