Örvitinn

risavaxið rúm

Þórður kom aftur til mín í gærkvöldi og hjálpaði mér að setja saman nýja rúmið hennar Áróru í nýja herberginu hennar.

Rúmið er vægast sagt stórt. Rosalega stórt :-)

Kosturinn er sá að það er hægt að standa undir því og því nýtist herbergið mjög vel. Setjum skrifborð, tölvuna og eitthvað fleira undir rúmið.

Á morgun höldum við svo upp á afmælið hennar Ingu Maríu sem við frestuðum um daginn vegna veikinda. Ég missi af inniboltanum og Liverpool leik á afmælisdeginum mínum. Segið svo að maður fórni sér ekki fyrir fjölskylduna.

Í kvöld ætla ég að setja kjúklingabaunir í bleyti því að á morgun ætla ég að búa til hummus.

dagbók