Örvitinn

öfga hvað ?

"Dýraverndunarsinninn Volkert van der Graaf hefur viðurkennt að hafa myrt hollenska öfgahægrimanninn Pim Fortuyn"

Segir í þessari "frétt" moggans.

Ég er til í að veðja peningum um að í yfirlýsingu dómstólsins sem vitnað er í sé Pim Fortuyn ekki titlaðu öfgahægrimaður enda var hann það ekki.

Hitti fyrir skömmu par sem var nýkomið heim eftir að hafa búið í Hollandi í nokkur ár. Þau voru óskaplega hissa á þessari umfjöllun um Fortuyn, enda maðurinn allt annað en öfgahægrimaður.

Þennan stimpil fær hann vegna þess að hann barðist gegn öfgamúslimum sem ólu á hatri gegn samkynhneigðum en Fortuyn var hommi.

Auðvitað er hægt að túlka eitthvað sem frá honum hefur komið á versta veg, en að líkja honum saman við Haider eða aðra "öfga hægrimenn" er algjörlega út í hött. Af hverju kalla þeir hann ekki bara Nasista ??? Það væri álíka nákvæmt.

pólitík