Örvitinn

Gvuð í leikskólann

Jæja í dag mætir Séra Bolli Pétur Bollason í Hálsaborg, leikskólann hennar Kollu. Þar mun hann væntanlega ræða við krakkana um að forðast samkynhneigð, halda sig frá kynlífi og varast efahyggju :-P

Í bréfi frá leikskólanum var sagt að þetta "samstarf" leikskólans og Kirkjunnar væri að hefjast enda hefðu langflestir foreldrar samþykkt það með "örfáum undantekningum". Ég gæti trúað því að við séum þessi örfáa undantekning.

Alveg er ég viss um að Nasistar hafa haft samstarf við leikskólana í þriðja ríkinu. Alveg er ég sannfærður um að flestir foreldrar hafa samþykkt það með örfáum undantekningum

Ósmekkleg samlíking? Ekki mitt vandamál, hún er algjörlega réttlætanleg.

Ég varð reiður þegar ég frétti af þessu í september.

leikskólaprestur