Örvitinn

fíkniefni og hleranir

Ég er að gera tilraun og sjá hvort ég get komið af stað einhverri umræðu (rifrildi) um fíkniefnamál.

Hvaða vandamál fylgja fíkniefnanotkun sem ekki má rekja beint til þess að fíkniefni eru ólögleg? Eru það ekki einungis heilsufarsvandamál þeirra sem neita efnanna?

Hvaða vandamál má rekja beint til þess að fíkniefni eru ólögleg? Tja, að stórum hluta heilsufarsvandamál fíklanna, því þeir nota margir vond efni. Glæpir sem eru framdir til þess að fjármagna fíkniefnaneyslu koma til útaf banninu. Glæpir sem eru framdir af sölumönnum koma til út af banninu.

Fleira gæti ég talið til og geri síðar...

eiturlyf