Örvitinn

aðfangadagur

jæja, kalkúnninn er kominn í ofn. Reyndar borðum við hann ekki í kvöld þar sem við förum í mat til foreldra minna. Ákváðum að elda kalkúna hér heima til þess að eiga einhverja "afganga" á morgun.

Oh hvað ég hlakka til að borða jólamatinn :-)

Ég tók nokkrar myndir af eldamenskunni áðan en minniskortið var að gefa upp öndina. Þar glötuðust nokkrar myndir, þar með talið myndir af stelpunum að skreyta jólatréð.

dagbók