Örvitinn

beðið eftir pizzu

Nú er kominn klukkutími og kortér síðan ég pantaði pizzu hjá Pizzahöllinni, ekki er hún ennþá komin.

Ég er í fríi í dag, ætla að skjótast í vinnuna á eftir til að mæta á starfsmannafund. Fer svo í World Class.

Ég held að gaurinn hjá Pizzahöllinni hafa verið að ljúga þegar ég hringdi áðan til að kvarta undan klukkutíma bið. Þá sagði hann mér að sendillinn væri farinn af stað með pizzuna. Það tekur ekki korter að keyra úr Mjódd í Bakkaselið.

En við fáum helmings afslátt. Erum líka helmingi svangari núna en þegar við pöntuðum.

dagbók
Athugasemdir

Regin - 02/01/03 14:28 #

Gleðilegt nýtt ár og allt það. Ég vona að þetta hafi verið grænmetispizza, m.v. þyngdarþróunina undanfarið þá er vart á það bætandi :):)

Matti - 02/01/03 14:57 #

Neibb, pepperoni og sveppir. Slátraði hálfri 16" einn og óstuddur.

World Class klukkan 16:00, þar verður tekið hrikalega á því.

Átakið byrjar aftur á eftir :-)