Örvitinn

árrisull

Jólafríið er búið og ég fór á fætur klukkan sjö. Fékk mér smá morgunmat en sleppti ræktinni. Ætla að skjótast í ræktina klukkan tvö í dag fyrst ég er á bílnum.

Það var nú auðveldara en ég þorði að vona að vakna í morgun. Fór snemma í rúmið í gærkvöldi en Inga María og Kolla voru nú eiginlega búnar að klúðra fyrir mér nætursvefninum. Voru vakandi í kringum miðnætti og Inga María var í sérlega miklu stuði. Endaði með því að ég lagði mig hjá Kollu, en entist nú ekki lengi hálf sængurlaus.

dagbók