Rölti á útsöluna í skífunni og keypti mér tölvuleikinn REZ á 1999.- kr, var næstum því búinn að kaupa Frequency á 999.- kr en ákvað að bíða með það þar sem ég held að þessir leikir séu of svipaðir.
REZ er mjög flottur. Ég spilaði hann í svona klukkutíma í gær og var að fíla hann mjög vel.
Leikurinn er mjög einfaldur að uppbyggingu. Þetta er í rauninni bara klassískur skotleikur. En samspil hljóðs, myndar og "action" gerir þetta alveg magnað á einhvern undarlegan hátt.
|
www.flickr.com
|